Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Eigum viđ ađ hćtta međ ţessa síđu?

Ađrar myndir

Takk fyrir komuna!!

hćhć

Takk fyrir innlitiđ!
blog images

blog images




kv. The Ladies

Innskráningar kubbur

Maggý og sandra voru í stræ 313.. voru eikka að reykna með spilastokk... Sandra ætlaði að vera GEGGT gáfuð ( ekki að hún sé það ekki alltaf) en já.. byrjaði hún.. ´já það eru 59 spil í spilastokk, svo já það eru 3 drottningar í spilastokk.. hélt hún áfram .. það eru 4 hjartaspil í spilastokk.. það var bara ein og hún hafði ALDREI séð spil áður


Sandra, Eva Dögg og Erla eru á leiðinni á kaffihús... Erla er að keyra og stoppar á rauðu ljósi á Hverfisgötunni þegar þær heyra skyndilega sírenuhljóð í sjúkrabíl... Erla fær sjokk og heldur áfram og beygir upp á kant og svaka læti .. neinei.. þá koma sjúkrabilarnir einhversstaðar lengst frá þeim þannig að rescuemission Erlu gekk ekki alveg.. frekar vandræðalegt...


Erla er í skólanum.. það er íslenskutími og Eva Dögg og Oddur sitja með henni.. Soffía, Já Soffía er að kenna og erum við öll að hlusta á hana þangað til síminn hennar Erlu byrjar að titra í töskunni...bzzzz... crap.. hún læðist í töskuna og skellir á... eftir smástund byrjar hann að titra aftur! Soffía segjir þá " Ertu viss um að þetta sé síminn þinn??" og Erla verður svo eldrauð í framan og segjir e-ð ...." eehhee... jáááá" og allir skellihlægja.. hehe.. þeir sem eru ekki að fatta þá meinti Soffía þetta eins og Erla væri með vibrador í töskunni!! ..hehe.. gaman að þessu..

Erla, Eva Dögg, Katrín Ella og Tinna Kristín voru á hressó eitt kvöldið. Þær hlamma sér niður við lítið sætt borð og panta sér drykki. Erla pantar sér kók.. Katrín swiss mokka.. Tinna epladjús og Eva Dögg fær sér vatnsglas... hehe.. engar áhyggjur.. er að koma mér að póíntinu.. þegar afgreiðslustúlkan kemur svo með drykkina segir Eva Dögg... "Vá hvað vatnið mitt er gult!" hehe.. þá var þetta epladjúsinn hennar Tinnu ! :D ... oo dúlla...


Erla er stödd í Frakklandi með mömmu sinni. Hún og vinkona hennar ætla að rölta og fá sér samloku. Þegar á staðinn er komið sér Erla þennan risastóra gosgeymir. Hún ákveður nú bara að fá sér kók en á erfitt með að opna geyminn. Hún ákveður að fara við hliðina á geyminum og nota báðar hendurnar.. en allt kom fyrir ekki.. Erla hrynur niður gat sem var í gólfinu og fellur 2-3 metra niður. Hún fær létt áfall og opnar augun og þá sér hún að hún er stödd í einhverri kjötgeymslu. Hún er öll grútskítug en afgreiðslumennirnir koma hlaupandi og hjálpa henni. Svo labbar hún skömmustuleg í burtu með ostasamloku í annarri og kók í hinni...

Jæja, en eitt vandræðalega mómentið hjá henni Erlu. Hún var stödd með fjölskyldu sinni á Bláfjöllum. Hún stóð hjá pabba sínum í diskalyftunni og beið eftir að það kæmi að henni. Þegar fer að líða á röðina sér Erla að ein lyftan hefur flækst í vírnum (sem lyftan rennur á). Strákur sem vinnur þarna stekkur upp í lyftuna og nær henni niður en það er ekki allt búið .. neinei,... lyftan flækist þá í stóru vélinni sem heldur þessu gangandi og um leið strekkist á vírnum og þá verður til þessi ótrúlega risa teygja. en auðvitað var Erla á staðnum og um leið og lyftan losnaði þá slengdist hún beint í hendina á henni!.. hún mátti þakka fyrir að hausinn hefði ekki fokið af bara... hún var í þykkum kraftgalla og þegar kíkt var á hendina var hún öll marinn og blá.. svona kallar mar að vera á röngum stað á röngum tíma!!

Sandra var ný flutt frá Bandaríkjunum árið 2000 og hún ákvað að byrja að halda áfram í fótboltanum hérna á íslandi og mætti á sína fyrstu æfingu. Allt gekk vel, nema Sandra var á leið í boltan sparkar eins fast og hún gat í hann, nema þegar hún sparkaði var hann farinn og hún dúndraði í vegginn og braut stóru tánna sína. ekki góð byrjun, enda er hún búin að brjóta hana 4x síðan.

Katrín Ella, Maggý og Erla eru á Hverfisbarnum. Þær stoppa stutt og að lokum ákveða þær að fara heim. Katrín er á kagganum sínum og er með fjarstýringu til að læsa bílnum. þegar hún reynir svo að opna bílinn gengur það með erfiðleikum og ýtir oft á takkann en loks tekst það. Þá segir Katrín " shit, ég var farin að halda að við yrðum hérna í nótt!" þá segir Maggý: " Katrín, þá hefðiru getað notað lykilinn!!!!!!" ... hehe..

Erla er að skemmta sér á ljósanótt í Keflavík. Hún er ennþá á þessum blessuðu bólulyfjum svo hún er ekki að fá sér í glas og er nýbúinn að fá bílpróf. Hún er að rúnta um reykjanesbæinn á svaka kagga sem mamma vinkonu hennar á svo hún er frekar smeik að keyra hann. Hún er að skutla vini sínum heim. Erla keyrir inn í innkeyrsluna og vinurinn stígur út. Svo er komið að því að bakka. Erlu til mikillar skelfingar þá getur hún ekki bakkað. Hún reynir allt! Slengir gírstönginni fram og til baka. En bíllinn fer bara lengra áfram og er farinn að sleikja bílskúshurðina. Erla veit ekkert hvað hún á að taka til bragðs... allir blindfullir og hún nennir ekki að vera föst í einhverri innkeyrslu alla nóttina svo hún hringir bara í lögguna!. Löggan kemur á staðinn og Erla útskýrir allt fyrir honum. Hann segir henni að prófa ýta gírstönginni niður og Erla gerir það.. það virkar!.. Löggan fer að hlægja en Erla keyrir skömmustuleg í burtu...

Einn góðan veðurdag voru skvísurnar Maggý, Tinna Kristín og Erla að krúsa um bæinn. Maggý er við stýrið og þegar á Snorrabrautina er komið koma þessir svakalegu hard core mótorhjólagæjar og stoppa við hliðina á þeim á rauðu ljósi... Stelpurnar ákveða að stríða aðeins þessum ljótu gúmmítöffurum. Þær gefa þeim auga og láta skína í tennurnar... svo bruna þær af stað í átt að lækjartorgi en þeir komast framúr þeim. Svo koma gangbrautarljós. Vinstra beygjuljósið er rautt en aframljósið er grænt. Þær sjá að mótorhjólagæjarnir eru stopp á rauða ljósinu og þær ætla sér áfram en Tinnu og Erlu til mikillar furðu þá stoppar Maggý á grænu ljósi við hliðina á þeim (eins og þær voru gegt að vilja þá) Tinna og Erla hrópa hástöfum : "ÁFRAAAM!!!" og greyið Maggý fær næstum því hjartaáfall en rúntinum er haldið áfram.

Við stelpurnar, Maggý, Tinna, Erla og Margrét R. fórum nú um daginn á Pravda, sem er nú með þeim flottustu skemmtistöðum niðrí bæ. Við byrjuðum nú auðvitað því að tékka alla gæjana, sem mig minnir að hafa verið þokkalegir..:p Við stefndum eftir það á dansgólfið að dansa our sexy dans;) og fengum okkur síðan smá í glas.. en svo kom að því að leiðir okkar skyldu og Maggý fór að leita af sinni ástkæru Erlu sem var týnd úr hópnum :p Maggý fór niður á neðri hæðina og sá Erlu þá sitja í einu horninu að tala við einhvern fola;) Maggý strunsaði í áttina til þeirra og ætlaði að hlamma sér gjeðveikt töff og kynþokkafull hliðin á þeim.. en viti menn.. enginn stóll og hún endaði í köku á gólfinu.. Fólk horfði eins og hún væri vangefin..! :|

Þar sem það var komin tími f. Söndru að taka bensín gerði hún það sama og allir, skrúfaði bensínlokið af. nema einhvernvegin fannst henni hún ekki vera búin að því og endaði það því með að hún stakk hendinni beint inn í gatið og auðvitað varð hendin á henni öll út í bensíni!!

Árið 2000 fór Erla og hennar fjölskylda í heimsreisu. Erla var búin að skoða fullt af bæklingum af hótelum, eyjum og ströndum og gjörsamlega búin að ímynda sér paradísina. Þegar á eyjuna Penang var komið var fjölskylda Erlu nýbúin að stíga inn á þetta glæsilega hótelherbergi. Mamma Erlu var úti á svölum að reykja. Erla er svo spennt að hún hleypur í átt að svölunum og kallar: "Mamma, djöfull er þetta geggjað! þetta er alveg eins og í bæklingnum!" og svo bara BANG!! Erla hljóp í gegnum svalahurðina og hurðin er í molum!. Allt fer í háaloft og á meðan Erla liggur í blóði sínu þá verður pabbi hennar allt í einu kríthvítur í framan! Hann sest á stól en allt kom fyrir ekki! Það líður yfir hann og hann skallar borðstofuborð sem er beint fyrir framan hann og fær gat á hausinn..flott það... þetta er nú meiri hilliebillie fjölskyldan!

Þann 18.Janúar var Sandra upp i bláfjöllum að gera sig alveg á bretti! þar sem hún er búin að vera nokkur ár á bretti ætti svo sem ekki mikið að fara úrskeiðis en einhvernvegin náði sandra að gera sig að fíbli enn einu sinni. Hún og vinkona hennar voru að setjast í lyftuna og hún komin smá af stað, einhvernfegin náði sandra að detta af.. hún reynir að halda sér einhvernvegin í liftuna en nei nærð því ekki og endar eins og fáviti í snjónum meðan fólk hló af henni.

Þar sem sandra er að vinna í Bío er hún að afgreiða fólk allan daginn, það kemur kona til hennar og segir: " ég ætla að fá svartar reimar" ( þar sem það eru til fylltar og ófylltar þá spyr sandra " fylltar eða óhreinar?" konan sem hún var að afgreiða byrjar allt í einu að skellihlægja og líka allir í kringum hana. Sandra áttaði sig ekki strax á því sem hún hafði sagt en svo skammaðist hún sig íkt mikið. Þegar konan var komin að salnum sem hún var að fara í var hún enn hlægjandi og talandi um óhreinureimarnar sem hún fékk. Sandra varð eins og tómatur í framan!

Erla labbar inn á kaffibarinn ásamt frænku sinni, Kötu. Erlu vantar eldspýtur svo hún labbar að afgreiðslukonunni og spyr: "Fyrirgefðu, áttu nokkuð eldspýtur til að lána mér?" Afgreiðslukonan lítur skringilega á Erlu eins og hún hafi ekki heyrt í henni svo Erla spyr aftur: "Áttu eldspýtur til að lána mér?" Afgreiðslukonan segir þá: " Sorry, I don't speak Icelandic". Erla segir þá og hugsar þá með sér að nú ætli hún sko að reyna á enskuna. "OK, Can u lend me some eldspítörs??, u know.. it goes like this.. quissss and then comes fire!" (nörd)

Erla er að vinna á Nings og líkar mjög vel við þá vinnu. Eitt kvöldið labbar sjálfur Stebbi Hilmars inn og Erla ætlar sko aldeilis að láta þjónustuhæfileika sína skína fyrir celebritíið!... Stebbi búinn að panta og ekkert mál með það... ætlar að taka matinn með og svona... svo kemur að því að maturinn er tilbúinn.. Venjan á Nings er sú að starfsfólkið býður upp á sojasósu og prjóna. Erla ræskir röddina og segir háum rómi: "Má bjóða þér sojasósu og baunir!?!" Stebbi Hilmars: "Baunir? Seljiði baunir?" Erla með hausinn lengst niðrí gólf: "Nei, ég meinti prjóna" Stebbi Hilmars labbar út hlægjandi en Erla lítur á Jóhönnu sem vinnur með henni og segir: " BAUNIR!?!...why..?"

Maggý er í Smáralindinni ásamt vinkonum sínum þegar hún ákveður að fara í Zöru að kaupa afmælisgjöf handa vini sínum. Folarnir eru ekki ófáir þar og reyna þær stöllur að halda sér til haga en allt kom fyrir ekki. Upp kemst á góma flotta múvið hennar Steinunnar á dansgólfinu.. svo Maggý ákveður að reyna það en út kemur asnalegasta mongólita múv sem hægt er að hugsa sér og þær hlægja og hlægja en snúa sér við til að athuga hvort einhver hafi séð þetta litla grey... og þá stendur myndarlegi gaurinn og hlær!

Við vorum á kaffihúsi um daginn og hittum Kristínu ástu og Theó, og þær eru að vinna á elliheimili. Erla var voða forvitin hvað þau væru að gera og Kristín byrjar að lýsa þessu; já við bara gefum þeim að borða, förum með þeim á klósettið, böðum þau og svona. Þá kemur Erla með þennan líka alvarlega svip og segir: já hvernig gerið þið það? SPÚLIÐ ÞIÐ ÞAU EÐA? já Erla, gamla fólkið er öllu hent út á plan og þau eru spúluð!!! hún er nú meiri ljóskan;)

Klukkan